152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[15:39]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Það kom fram í ræðu þingmannsins seinna og mjög áhugavert að það sé dregið fram að hann styður það að þessi þingsályktunartillaga verði samþykkt eins og hún liggur fyrir. En spurning mín laut að þessu, hvort það væri eðlilegt að þingið hefði aðkomu að slíkum stórum málum. Ég verð að segja fyrir mitt leyti að mér finnst það mjög mikilvægt. Þegar hér er rætt um fyrirvara þá er það auðvitað alkunna að þingmenn kunna að hafa einhvers konar fyrirvara við mál, það snýst þá bara um að málið sé að fara í þá þinglegu meðferð sem við höfum byggt upp hér og hv. þingmaður þekkir það jafn vel og ég að mál taka oft breytingum, stundum töluverðum, stundum minni háttar breytingum. Ég sé varla fyrir mér að þetta mál taki einhverjum meiri háttar breytingum en mér finnst sjálfsagt að þingið fái tækifæri til þess að ræða það. Ég hef sagt það hér í ræðu þegar þetta mál kom fram síðast að til þess að ná sátt um málið held ég að það þurfi að stækka biðflokkinn. Þannig myndum við í rauninni ná að halda áfram með málið því að, eins og hv. þingmaður kom einmitt inn á. Ef við náum ekki að klára þennan ramma þá er þessi hugmyndafræði á bak við rammaáætlun væntanlega dautt fyrirbrigði. Það fyndist mér mjög sorglegt því að ég tek undir með hv. þingmanni, ég held að það hafi verið mikilvægt skref að fara í þá vegferð og þá vinnu sem byggir á vinnu verkefnisstjórnanna þar sem horft á alla þætti. En á sama tíma vil ég sem kjörinn fulltrúi ekki afsala mér því að við hér kunnum að komast að annarri niðurstöðu en þeir sem sátu í verkefnisstjórninni en auðvitað á þeim grunni að við höfum kynnt okkur öll gögn og farið yfir faglega vinnu verkefnisstjórnar. Ég hefði haldið að við hv. þingmaður værum saman í flokki að fagna því að þingmenn gætu einmitt tekið svona tillögu og hefðu fullt vald til að gera á henni breytingar ef um það næst meiri hluti hér á þingi.