152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[15:41]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég held að það sé yfirleitt til mikilla bóta þegar þingnefnd eða þingið tekur frumvarp til ígrundaðrar skoðunar og lætur ekki eins og sá stimpilpúði sem stundum er haft í flimtingum að þingið sé, sérstaklega gagnvart innleiðingu hinna ýmsu Evrópureglugerða. (Gripið fram í.) — Ég vissi að ég næði hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson með þessu. En þetta mál er svolítið sérstaks eðlis og við þekkjum sögu ósættis í tengslum við virkjanaframkvæmdir til langs tíma. Þess vegna var gerð þessi tilraun sem er búið að eyða gríðarlegum tíma og fjármunum í að forma rammaáætlunarferli með þessum hætti með aðkomu bæði stjórnmálamanna úr þinginu, sveitarstjórna, hagsmunaaðila, landeigenda. Aðkoma aðila er mjög mikil í ferlinu. Að því sögðu þá verð ég að viðurkenna að þetta mál þykir mér bara njóta töluverðrar sérstöðu. Það má eiginlega segja að það byrji að molna undan rammaáætlunarferlinu þegar þáverandi hæstv. umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, er fyrsti umhverfisráðherrann, ef minnið svíkur mig ekki, sem gerir breytingu á tillögu undirbúningshópanna áður en mál er lagt fram í þinginu. Það þótti mér kannski vera upphafið að þeirri þrautagöngu sem við höfum horft upp á núna síðustu ár og í rauninni allt frá árinu 2013.