áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér býsna stórt og mikilvægt mál, rammann svokallaða. Ég lít þannig á að við séum hér að fjalla um eina af okkar stærstu framtíðaráskorunum sem eru loftslagsmálin. Það er engin launung að allir fundir og allar ráðstefnur, hvort sem er á alþjóðlegum vettvangi eða hér innan lands, þar sem verið er að ræða um loftslagsmál, fjalla um orkumál og orkuskipti, hvernig heimsbyggðin getur skipt úr jarðefnaeldsneyti yfir í hreina orku. Þar stöndum við Íslendingar framarlega með auðlindir sem okkur hefur tekist að virkja og nýta til ýmiss konar framleiðslu og til þess að lifa því góða lífi sem við lifum hér á Íslandi. Það er kannski sérstaklega áhugavert að horfa á það í samhengi við það sem er að gerast í nágrannalöndum okkar, það sem er að gerast í Evrópu í dag. Þar eru ríki algerlega háð því að fá gas frá Rússlandi á sama tíma og mikil átök eiga sér stað og Rússar hafa sýnt tilburði til að ráðast enn frekar inn í Úkraínu. Hægt er að fagna því að við hér, þessi fallega eyja í Atlantshafi, erum sjálfstæð og sjálfbær hvað orkuöflun varðar og eigum þann möguleika að verða sjálfstæðari og sjálfbærari með því að nýta orkuna okkar svo að við getum hætt að brenna jarðefnaeldsneyti á bílana okkar og farartækin, nýta fallorku eða aðra orkugjafa til þess.
En eins og hér hefur verið farið yfir er það svolítil sorgarsaga hvernig okkur hefur tekist upp með rammann. Eins og ég fór yfir í andsvari áðan þá er ég sammála því, eftir að hafa fylgst með því sem unglingur þegar tekist var á um Kárahnjúkavirkjun og virkjanir hér áður fyrr, að það væri sniðugt og skynsamlegt að hafa faglegt ferli þar sem farið væri yfir orkukostina og að við værum ákveðin í því að einhverjir kostir yrðu aldrei virkjaðir og færu þar af leiðandi í verndarflokk. Annað væri sjálfsagt að virkja og þá færi það í nýtingarflokk og svo væri það biðflokkurinn. En því miður hefur þetta ekki gengið eftir eins og fólk sá fyrir sér í upphafi og því er auðvitað fyrst og fremst um að kenna að við sem stjórnmálamenn — og þá er ég kannski meira að vísa í þá sem voru hér á undan mér og á undan okkur flestum — höfum ekki komist að niðurstöðu um að vinna málið áfram. Ég ætla að reyna að vera bjartsýn og vona að það náist í þetta sinn.
Eins og ég sagði áðan, og hef sagt áður þegar við höfum verið að fjalla um rammann, þá sé ég þá lausn helst fyrir mér að biðflokkurinn stækki. Sumir myndu þá halda að við værum svolítið að gefast upp á verkefninu og það er alveg hægt að setja þau gleraugu upp. En mér finnst ekki síður mikilvægt að horfa til þess að framtíðarkynslóðir fái líka að taka ákvarðanir um nýtingu eða vernd auðlindanna okkar. Það er sjálfsagt að sú kynslóð sem tekur við af okkur sem nú sitjum í þessum sal, og mun kannski þurfa að takast á við einhver allt önnur verkefni en við erum að gera, hafi burði til að nýta eða vernda og njóta auðlindanna sem landið okkar býður upp á.
Það er spurning hvort og hvernig ætti að gera breytingar — við erum með þingsályktunartillögu, þetta er ekki lagafrumvarp þannig að farið verður í tvær umræður og þetta fer til nefndar. Þetta er ekkert flókið þannig lagað séð. Framsetningin er auðvitað: nýtingarflokkur, biðflokkur og verndarflokkur, og svo kemur greinargerðin. Mér þætti mjög eðlilegt, virðulegi forseti, að þingmenn í hv. umhverfis- og samgöngunefnd fari ítarlega yfir málið og hafi tök á því að gera breytingar ef um það semst. Ég sæi ekki fyrir mér að þingið eða nefndin myndi gera einhverjar breytingar aðra en þá að stækka biðflokkinn. Mér fyndist mjög óeðlilegt ef einhver kostur færi beint úr nýtingu í vernd eða úr vernd í nýtingu. Ég hef hingað til haldið því fram að það gæti verið góð leið að stækka biðflokkinn. En stóra málið er að við þurfum að ná að afgreiða þetta og klára málið.
Þeir sem skipa stjórnarandstöðuna, eins og hún er kölluð í daglegu tali, hafa haft gaman af því að ræða hvort stjórnarflokkarnir séu ekki alveg sammála um allt. Við vitum það ósköp vel, það þarf ekkert að reyna að segja einhverja brandara um það, að við erum ekki sami flokkurinn og við erum ekkert sammála um allt, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri græn og Framsókn, það er bara þannig. Ekki frekar en stjórnarandstaðan er sammála um allt. En stóra málið er að reyna að finna leið til framtíðar sem við getum, við sem myndum stjórnarmeirihlutann og ekki síður þingið allt, sameinast um. Þetta er auðvitað stóra framtíðarskrefið sem við verðum að stíga á næstu árum. Ég er algerlega handviss um að við þurfum meiri orku. Ég heyrði einhverja þingmenn koma hér upp áðan og segja: Heyrðu, það þarf ekkert meiri orku, við þurfum ekkert að virkja meira. Ég er ekki sammála því. En fyrst og síðast eigum við auðvitað að fara sparlega með orkuna og leita allra leiða til að draga úr orkunotkun, nýta þekkingu og tækni sem er að verða til í þeim efnum.
Líklega er langstærsta og mikilvægasta skrefið samt sem áður að styrkja flutningskerfið. Það er algjörlega óásættanlegt að ákveðnir hlutar landsins búi ekki við orkuöryggi og sú mengun sem verður til, þegar við erum að brenna olíu til að halda bræðslum gangandi eða hreinlega til að hita hús eða gera litlum fyrirtækjum kleift að starfa á ákveðnum stöðum á landinu, er algerlega óásættanleg. Ég held því að það sé stóra framtíðaráskorunin okkar. Við ræddum töluvert hér á síðasta kjörtímabili, eftir fárviðrið í desember 2019, held ég að ég muni rétt, skýrslubeiðni sem við lögðum fram, nokkrir þingmenn, þar sem farið var yfir þessa hluti og var algjörlega ljóst að innviðir okkar, þegar kemur að raforku, eru ekki nægjanlega traustir og úr því þarf að bæta.
Að þessu sögðu langar mig að óska hv. umhverfis- og samgöngunefnd velgengni í vinnu við þetta mál. Ég vona að við fáum tækifæri til að ræða þessa hluti hér í síðari umræðu fyrir sumarið og afgreiða þar með þessa þingsályktunartillögu. Eins og hæstv. ráðherra kom inn á þá bíður næsti rammi okkar. En ég held líka, virðulegur forseti, að það sé okkur öllum hollt, í því mikilvæga verkefni sem framtíð okkar er, að við drögum kannski aðeins úr þessu flokkspólitíska stríði og hugsum um framtíð Íslands, áttum okkur á því mikla og stóra viðfangsefni sem loftslagsmálin eru. Við skynjum öll hversu mikilvægt hlutverk við Íslendingar spilum í því, ekki síst í þekkingu og tækni sem skapast hefur við að nýta sjálfbæra orku. Við getum verið raunveruleg fyrirmynd í heiminum þegar kemur að því að hætta að nota jarðefnaeldsneyti og nýta sjálfbæra orku. Við það bætist svo auðvitað annar orkukostur sem er vindorkan og hún er auðvitað ekki í rammanum í neinum mæli. Við höfum aðeins tæpt á því í þessari umræðu að það þurfi að koma lög í kringum það. Í mínum huga mega þau ekki vera of flókin því að kosturinn við vindorku er jú sá að það eru algjörlega afturkræfar framkvæmdir. Með því er ég ekki að segja að ég vilji vindmyllur á öll fjöll eða í alla firði, alls ekki. Við þurfum að finna einhvern ramma í kringum það. En tækifærin eru svo víða og það væri sorglegt ef við myndum ekki nýta þau frábæru tækifæri sem felast í grænu orkunni okkar til þess að verða sjálfbær og græn og leggja mikið af mörkum í baráttunni við loftslagsvána.