152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[15:53]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir sitt innlegg í þessa umræðu. Það er tvennt sem mig fýsir að spyrja þingmanninn að, það kann að vera að það hafi komið fram í máli hennar og ég ekki hlustað nógu vel, en var tillagan afgreidd fyrirvaralaust úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins? Það er fyrri spurningin. Seinni spurningin varðar biðflokkinn. Ég er svolítið hrædd um að það sé ákveðinn misskilningur uppi um færslu á milli flokkanna, nýtingarflokks, biðflokks og verndarflokks. Þegar kostur er kominn í nýtingarflokk þá er hann tækur til að fara í ferli sem gæti endað með virkjun. Þegar kostur er kominn í verndarflokk er búið að meta hann það verðmætan að það eigi að friða hann gegn orkunýtingu. Kostirnir í biðflokknum eru þeir sem eiga eftir að fara á hvorn veginn sem er. Þannig að ég verð að viðurkenna að ég botna ekki alveg í þessari línu, þó að mér skiljist að hún sé í stjórnarsáttmálanum, um fjölgun kosta í biðflokki. Það væri ágætt að fá betri útskýringu á því.