152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[15:58]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og get frætt hv. þingmann og fleiri í stjórnarandstöðunni um að það koma fleiri mál og þau eru örugglega þegar komin inn í þingið þar sem almennir fyrirvarar eða fyrirvarar einstakra þingmanna stjórnarflokkanna liggja fyrir. Það er bara þannig að mál eru afgreidd út úr þingflokknum inn í þingið til þinglegrar meðferðar og þingmenn vilja oft setja fyrirvara við ákveðin mál sem þeir vilja kynna sér betur, velta upp sjónarmiðum í þinglegri meðferð. Eins og ég fór ágætlega yfir áðan, bæði í ræðu minni og í andsvari, þá fagna ég því að við sem þingmenn höfum einmitt tækifæri til að taka þessa umræðu og það sé ekki litið þannig á að þingið sé einhver stimpilpúði og eigi bara að stimpla það sem kemur frá ríkisstjórninni. Í þessu tilfelli, og hv. þingmaður fór vel yfir það, kemur þetta auðvitað frá verkefnisstjórninni og menn komu sér saman um aðferðafræði sem verkefnisstjórnin byggir á. Hún er ekki frekar en nokkuð annað hafin yfir gagnrýni. Mér finnst þess vegna eðlilegt að þjóðkjörnir þingmenn hafi tækifæri til að ræða það og velta upp þessari aðferðafræði og velta því upp hvort eitthvað megi líta öðruvísi út en það gerði nákvæmlega þegar það kom frá verkefnisstjórninni á sínum tíma.