áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur ræðuna. Mig langar til að spyrja hv. þingmann, í ljósi þess að ég veit að þingmaðurinn er búinn að skoða þingsályktunartillöguna eins og hún liggur fyrir og í ljósi þess líka að þingmaðurinn tók þátt í umræðu um málið í fyrra: Af þessum sjö kostum í orkunýtingarflokki hvað vatnsaflsvirkjanir varðar, er einhver ákveðinn kostur sem hv. þingmaður teldi líklegri til að færast niður í biðflokk af þeim sem nú eru í virkjunarflokki eins og þetta er lagt fram hér? Og sömuleiðis, eru einhverjir ákveðnir virkjunarkostir á háhitasvæðunum sem það sama ætti við um? Það væri áhugavert að heyra um það frá þingmanninum, nú eða enn betra, þingflokki Sjálfstæðisflokksins, hvort það lægi einhver lína þaðan um hvaða kostir yrðu helst teknir úr nýtingarflokki. Nú liggur fyrir að önnur umferð þjóðlendumála er að hefjast í boði Sjálfstæðisflokksins. Þar er verið að gera t.d. kröfu um að obbinn af vatnsupptökusvæði fyrir Hvalárvirkjun verði felldur undir eignarhald ríkisins. Allt spilar þetta saman með einum eða öðrum hætti. Er það t.d. skoðun Sjálfstæðisflokksins að Hvalárvirkjun skuli færð úr nýtingarflokki, bara í ljósi þeirra áhrifa sem eru að koma fram af frumvarpi fjármálaráðherra um aðra umferð þjóðlendumála? Ég læt þetta duga í fyrri umferð.