áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Nei, ég get ekki nefnt einhverja ákveðna kosti sem ég persónulega eða þingflokkur Sjálfstæðisflokksins teldi eðlilegt að flytja þarna á milli. Ég treysti hv. umhverfis- og samgöngunefnd til að fara faglega og vel yfir þetta mál og ef nefndin kemur sér saman um að það sé ástæða til að breyta þá ríki um það mikil samstaða innan nefndarinnar. En ég ætla ekki hér að nefna einhvern einn kost frekar en annan. Þó að ég hafi kynnt mér þessa þingsályktunartillögu og tekið þátt í umræðu um rammann áður þá viðurkenni ég það alveg að ég hef ekki mótað mér skoðun um það hvort eitthvað sé þarna óæskilegt, þ.e. ef ég ætti sjálf að færa eitthvað á milli. Ég hef eingöngu sagt það, til þess að við getum haldið áfram með þessa hugmyndafræði og verklag sem ramminn er og til að ná fram einhverri sátt í málinu, þá kynnum við að þurfa að færa meira yfir í biðflokk. En það er ekki vegna þess að mér sjálfri finnist persónulega einhverjir kostir vera í nýtingu sem ættu að vera í vernd eða öfugt. Þetta snýst í mínum huga um að við reynum að ná fram einhverri pólitískri sátt í málinu og náum að afgreiða það til þess einmitt að halda áfram með þessa hugmyndafræði og verklag sem ramminn er. Hv. þingmaður fór nú ágætlega yfir það í sinni ræðu og virtist hafa sterkar skoðanir á því að þetta væri rétt leið okkar til að nálgast þetta flókna viðfangsefni þegar við erum að velja á milli þess að nýta og vernda náttúruauðlindir okkar.