152. löggjafarþing — 37. fundur, 10. feb. 2022.
áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
332. mál
Herra forseti. Ég þakka svarið. Ég tel þetta vera ágæta leið en ég er að verða úrkula vonar um að hún muni ganga til lengdar. En mig langar til að spyrja hv. þingmann, af því að þingmaðurinn segir að það sé leið sáttar að stækka biðflokkinn: Leggur þingmaðurinn að jöfnu að færa virkjunarkost úr nýtingarflokki í biðflokk og að færa virkjunarkost úr verndarflokki í biðflokk?