152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[16:05]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég fæ kannski að byrja á því að þakka fyrir þennan síðasta punkt hv. þingmanns varðandi rétt komandi kynslóða til að eiga auðlindir sem ekki hefur verið ráðstafað, mögulega vatnsafl eða gufu eða hvað það er, að núlifandi kynslóðir megi ekki vera svo uppteknar af því að fullvirkja Ísland að við gleymum því að það kemur fólk á eftir okkur. Stórvirkjanaöldin hefur ekki staðið í nema 60 ár, ein til tvær kynslóðir hafa farið mjög nálægt því að fullvirkja landið og væri sorglegt ef við myndum klára það áður en annað fólk kæmi að borðinu.

Mig langar að ræða þá fyrirvara sem einhver hluti þingflokks Sjálfstæðisflokksins gerir við málið, sem er vissulega ekki jafn mikil og stór afstaða og það að heilir þingflokkar geri fyrirvara sem gerist mjög sjaldan. Þótt einstakir þingmenn geri oft fyrirvara við stjórnarmál gerist það mjög sjaldan að heilir þingflokkar geri það. Það er sterkt merki og eitthvað sem gerist enn sjaldnar frá tveimur þingflokkum í sama máli. Hv. þingmaður fagnar því að með þessu getum við tekið umræðu í þessum sal um það hvernig við viljum sjá þessa tillögu þróast. Vandinn er sá að fulltrúar flokkanna sem gerðu þessa fyrirvara komu ekki með neitt slíkt í þetta púlt. Hv. þingmaður var spurð áðan hvaða virkjanir hún sæi fyrir sér að færa yfir í bið úr nýtingu — sem ég hefði haldið að væri hluti af þessari umræðu sem hún fagnaði að taka hér. Hún gat ekki bent á eina. Ég spurði hv. þingmann Framsóknarflokksins, Höllu Signýju Kristjánsdóttur, að því sama, hvar flokkurinn stæði í því. Ég fékk engin svör. (Forseti hringir.) Ef flokkarnir líta á þetta sem einhverja leið til að taka lýðræðislega umræðu um það hvernig breyta eigi rammaáætlun, (Forseti hringir.) af hverju liggur ekki fyrir nákvæmlega hvað það er sem þeir vilja breyta.