áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir ræðuna og tek undir það með henni að rammaáætlunin er gott verkfæri og var einmitt til þess hönnuð að fá umræðuna um orkunýtingu og náttúruvernd upp úr þeim skotgröfum sem sannarlega voru grafnar hér um aldamótin síðustu. En það er hins vegar þannig að Sjálfstæðisflokkurinn, flokkur hv. þingmanns, hefur verið í ríkisstjórn síðastliðin átta ár, næstum níu, og hefur haft þessi mál á forræði sínu sem ríkisstjórnarflokkur. Það hefur eitthvað verið í veginum fyrir því að afgreiða 3. áfangann þó að, eins og hér hefur komið fram, 4. og 5. áfangi séu farnir af stað, a.m.k. er sá 4. kominn á rekspöl. En ég er alveg sammála þingmanninum um að það er auðvitað ekki viðunandi að flutningskerfið virki ekki. Það er bara þannig og það verður að laga það. Það er eins, og við vitum, skipulagsmál. Þar eru flöskuhálsarnir. Þá þarf að finna einhver verkfæri til að komast fram hjá því og ekki bara það heldur að finna nýjar lausnir. Ég hef heyrt hæstv. innviðaráðherra hreyfa þeirri hugmynd að gera annars konar skipulag, t.d. fyrir flutningskerfið. Mig langar í fyrsta lagi að spyrja þingmanninn hvort slíkar hugmyndir hugnist henni. Í öðru lagi langar mig að spyrja þingmanninn hvort hún hafi gert fyrirvara við einstaka þætti í tillögunni, af því að mér skildist að einhverjir í þingflokki Sjálfstæðisflokksins hefðu gert það.