áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur kærlega fyrir svarið. Það er rétt sem ég tók fram í máli mínu að við þurfum að stíga upp úr þeim skotgröfum sem við höfum verið í í allt of langan tíma. Hv. þingmaður spyr mig hvort ég hafi gert fyrirvara. Nei, ég gerði það ekki, svo að því sé svarað hér. Sömuleiðis nefnir hún flutningskerfi raforku. Það er mér mjög hugleikið vegna þess að ég hef átt ótalmörg samtöl við forsvarsmenn fyrirtækja hringinn í kringum landið í mörg ár sem hafa ekki getað eflt starfsemi sína, hafa ekki getað stækkað verksmiðjur sínar eða bætt við framleiðslu. Mörg sveitarfélög hringinn í kringum landið geta ekki fagnað tækifærum til atvinnuuppbyggingar vegna þess að þau geta ekki útvegað þá orku sem um er beðið. Mér finnst það sárt vegna þess að ég vil sjá landið okkar í blómlegri byggð, í öllum sveitum, og eins og við vitum er forsendan fyrir blómlegri byggð öflugt atvinnulíf.
Af því hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir nefnir skipulagsmál varðandi flutningskerfið vil ég fá að nefna, sem 1. þm. Suðurk., að það er í ákveðinni pattstöðu sömuleiðis, sem er mikið áhyggjuefni. Í því sambandi vil ég nefna Suðurnesjalínu 2. Ég er ásamt hv. þm. Ásmundi Friðrikssyni á því frumvarpi þar sem lagt er til að ganga með mjög sterkum hætti inn í skipulagsvald sveitarfélags, sem manni þykir kannski ekki góður bragur á. En hvað á að gera þegar sú lína er búin að vera í ólestri í á annan tug ára?