áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni góða ræðu. Það er góð spurning sem kemur upp: Hvaðan á orkan að koma? Við glímum við það vandamál hér á Íslandi að 80% af allri orku sem við framleiðumfer til stóriðju. Stóriðjan mergsýgur íslensk fallvötn til að knýja sig, þetta er hátt hlutfall. Ef við spyrjum okkur um græna framtíð og lausnir í loftslagsmálum þá getum við einmitt líka spurt hvort hlutfall stóriðjunnar eigi ekki að vera lægra hér á Íslandi. Ef svo er þá er fullt af orku sem losnar og hægt er að nota í annað, mjög auðveldlega.
Sumir flokkar hafa talað um að við eigum að taka alla skítugu framleiðsluna frá öðrum löndum og framleiða á umhverfisvænni hátt hér, sem gengur ekkert rosalega langt. Við getum ekki framleitt það rosalega mikið af orku í viðbót. Samkvæmt áætlunum hér gætum við bætt við einum þriðja, 11 gígavattsstundir miðað við 19 núna, komið í 30, það er einn þriðji af því sem yrði. Það er ekkert rosalega mikil viðbót í hnattrænu samhengi. Spurningin er: Ættum við ekki einmitt að hugsa öðruvísi en þetta? Í staðinn fyrir að fara í gömlu lausnirnar, hvernig getum við gert sjálfbæra nýja og græna framtíð með orkunni sem við höfum sem þarf ekki nauðsynlega þessa framleiðsluferla sem við erum að kafna út af? Þegar við spyrjum: Hvaðan kemur orkan? er þá svarið ekki bara: Við erum þegar með hana?