152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[16:47]
Horfa

Thomas Möller (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir frábærar spurningar. Ég hef talað við nokkra sérfræðinga á þessu sviði og þeir segja mér að með tækni, með stafrænum lausnum, með betri túrbínutækni, sé hægt að framleiða mun meira rafmagn með núverandi virkjunum, með því að stýra vatninu betur, stýra straumnum betur, stýra dreifingunni betur. Við treystum svolítið á hugvit núna til að leysa þetta mál. Það má líka nefna, af því að álverin voru nefnd, að kannski er Ísland bara besta landi í heimi til að framleiða ál. Það eru komnar lausnir í Straumsvík þar sem koldíoxíði er bara dælt ofan í hraunið. Þetta er eina hraunið í heiminum sem tekur við koldíoxíði. Ég heyrði í gær að steypufyrirtæki hér í bæ eru að fara að dæla koldíoxíði í steypu þannig að það eru alls konar svona hugvitslausnir á þessum vandamálum sem við þurfum að nýta okkur; ekki bara fleiri uppistöðulón, fleiri virkjanir heldur nýta núverandi kerfi betur þannig að við framleiðum meiri orku án mikilla fjárfestinga.