áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Forseti. Fyrir rúmum áratug — vel það, það eru að verða tveir áratugir síðan — fór Svíþjóð í uppfærslu á orkukerfinu hjá sér þar sem orkukerfið virkar í báðar áttir, líka frá heimilum sem jafnvel framleiða rafmagn og geta selt út á netið. Það var t.d. gert með innleiðingu snjallmæla sem maður hefur heyrt ákveðna gagnrýni gegn, að það sé skipulag einhverra sem vilji mergsjúga almenning o.s.frv. Mér finnst það rosalega merkilegur málflutningur þegar um er að ræða tækniþróun sem getur gert gríðarlega mikið fyrir okkur í því að nýta orkuna betur. Að sjálfsögðu er hægt að nýta þá þróun á slæman hátt, við þurfum meira gagnsæi til að passa upp á að það sé ekki misnotað. Internetið leysir úr læðingi gríðarlegan samskiptakraft en er líka notað í gríðarlega slæmum tilgangi. Við þurfum alltaf að vakta og vita af göllunum þegar við innleiðum nýja tækni og nýja þróun. Það eru rosalega mörg tækifæri önnur en að virkja. Mér finnst vanta í innleggið í þessari þingsályktunartillögu til hvers er verið að bæta við. Af hverju er það nauðsynlegt en ekki aðrir kostir til framtíðar, t.d. snjallvæðing eða betri tæknilausnir í virkjunum og þess háttar? Það samhengi vantar til að við getum í raun tekið ákvörðun um meira.