áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Forseti. Ég vil aftur þakka fyrir góðar spurningar. Ég gæti talað um þetta í allan dag, fram á kvöld, þetta er svo spennandi svið. Það er svo margt áhugavert í gangi í þessum málum. Öll efnahagsþróun á Íslandi á næstu árum mun byggjast á orkunni sem fæst og umhverfismálum. Hæstv. ráðherra er í kjörstöðu til að hafa gríðarleg áhrif á svo mörg mál á næstu árum. Ef við horfum bara á atvinnuvegina sem dæmi. Við gætum framleitt allt okkar grænmeti hér á Íslandi, 80% af því eru flutt inn í dag. Við getum framleitt hér vörur og boðið þjónustu sem er orkutengd og umhverfistengd sem gæti haft gríðarleg áhrif á allt okkar efnahagslíf og framtíð og skapað tækifæri fyrir ungu kynslóðina, ný störf og þess háttar. Hér er kjörið tækifæri til að hafa gríðarleg áhrif.
Forseti. Ég vona að núverandi ríkisstjórn taki sér tak og fókuseri á þetta mál og geri þetta að algjöru forgangsmáli.