152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[17:15]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka svarið. Ég held að það sé nefnilega mikilvægt atriði, sem hv. þingmaður kom inn á í lokin, um samspil þeirra þátta og þeirra frumvarpa sem mynda þá heildstæðu mynd sem ætti að liggja fyrir okkur, að mér þykir, nú þegar. Við sjáum t.d. að raflínufrumvarpið er ekki komið fram þó að það hafi raunar átt að vera komið fram samkvæmt þingmálaskrá, sem heyrir auðvitað ekki undir hæstv. orkumálaráðherra. Það er eitt púsl í þessa mósaíkmynd sem skiptir gríðarlega miklu máli ef við ætlum okkur að ná að laga flutningskerfið. Síðan eru aðrir þættir sem snúa t.d. að regluverki vindmylla og þar fram eftir götunum.

En það sem mig langar til að spyrja hv. þingmann að er: Er að mati þingmannsins líklegra að málin klárist til enda, ramminn og þessi tengdu mál, ef þau eru öll til meðferðar á sama tíma? Eða telur hv. þingmaður að það sé kostur að reyna að klára eitt mál og fara síðan yfir í það næsta? Það sem ég hef áhyggjur af í því samhengi er að ef við horfum fram á það að ramminn velkist í umhverfis- og samgöngunefnd meira og minna fram á vor, með óljósri niðurstöðu í lokin, verði aðrir þættir, eins og vindorkufrumvarpið og raflínumálið, látnir sitja á hakanum og á endanum sigli allt í strand og við komumst ekkert áfram í þessum málum í byrjun þessa kjörtímabils, rétt eins og allt síðasta kjörtímabil, og verðum þá í sömu stöðu 2023–2024 og við vorum árið 2017.