152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[17:30]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Það er kannski ekki ástæða til að lengja umræðuna um þessa tillögu mikið en mig langar þó að koma upp og þakka hv. þingmönnum fyrir samtalið sem hér hefur átt sér stað um þessa áætlun, um vernd og orkunýtingu landsvæða. Ég tel umræðurnar vera nokkuð góðan vegvísi inn í starf hv. umhverfis- og samgöngunefndar. Málið er á forræði þingsins, eins og hér hefur margoft komið fram, og við vitum líka að þetta er u.þ.b. sex ára gömul tillaga og ráðherra hefur ákveðið að leggja hana fram óbreytta. Þó hefur komið skýrt fram í máli stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar, bæði alls þingflokks Framsóknarflokksins og alls þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og einhverra þingmanna innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins, að þeir gera fyrirvara um efni tillögunnar. Ég tek undir með hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni að það hefði kannski verið betra að fá betri upplýsingar um þá fyrirvara í þessari fyrri umræðu hér í dag. En gott og vel, það verður tekist á við það í nefndinni og væntanlega geta fulltrúar þingflokkanna útskýrt hvað felst í þessum fyrirvörum.

Ég hef enn ekki fengið svar frá þessum sömu þingmönnum við þeirri spurningu hvernig þeir hyggist stækka biðflokkinn, eins og það heitir. Ég sé hreinlega ekki, frú forseti, hvernig á að gera það nema að ganga þvert gegn aðferðafræðinni sem við höfum unnið eftir í rammaáætlun hingað til.

Þetta er þriðji ramminn, eins og við köllum það, og ég hef haft færi á að kanna upplýsingar á netinu, sem hæstv. ráðherra benti á hér fyrr í umræðunni, um stöðuna á 4. og 5. áfanga, og það var mjög fróðlegt, sérstaklega að sjá stöðuna á 4. áfanganum, við vitum að þar eru miklar breytingar hvað varðar tillögur um vindorku og annað slíkt. Það er auðvitað mikilvægt að þingmenn leggist á eitt við að reyna að ná málinu í gegn þannig að við verði unað.

Ég er hrædd um að fyrirstaðan verði ekki meðal þingmanna stjórnarandstöðunnar í þessu máli. Ég er hrædd um að hún verði annars staðar, enda er einhver ástæða fyrir því að ramminn hefur setið fastur í þinginu árum saman. Það er einhver ástæða fyrir því, og hún afhjúpaðist í umræðunni hér í dag með títtnefndum fyrirvörum. Ég velti því hins vegar fyrir mér, þótt ég gangi óbundin til þess verks að fjalla um tillöguna í nefndinni og stuðla að farsælli lausn hér á hinu háa Alþingi, hvort hv. þingmenn, stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar, ætli að vinna með okkur í stjórnarandstöðunni að því að reyna að klára þetta mál eða hvernig sú staða verður í nefndinni.

Þetta er sannarlega frekar óvenjuleg staða, frú forseti. En það hefur nú eitt og annað gengið á hér á hinu háa Alþingi þegar kemur að orkunýtingu og náttúruvernd. Við munum vonandi komast í gegnum þetta mál og klára það þannig að við getum minnkað óvissuna, bæði hvað varðar verndarþáttinn og einnig nýtingarþáttinn. Þetta snýst um að hægt sé að starfa eftir áætlun og eftir skipulagi sem öllum er ljóst, fólki og fyrirtækjum, og síðan er, eins og margoft hefur komið fram í umræðunni hér í dag, bæði um þessa tillögu og í sérstakri umræðu fyrr á þessum þingfundi, mjög margt ógert í að tryggja lagarammann um afhendingaröryggi, um flutningskerfið, um öryggi til afhendingar orku til almennings og fyrirtækja annarra en stóriðju og við verðum að vinda okkur í það mál.