152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[17:34]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Hv. þingmaður minntist á verklag við rammann fyrr í umræðunni og mér finnst við þurfa aðeins að ræða hvort verklagið, hvernig við setjum rammaáætlun, sé kannski orðið barn síns tíma. Það var tvímælalaust gott skref á þeim tíma sem það var sett upp en hlutirnir hafa þróast síðan þá. Eins og hefur komið fram í umræðunni verðum við að skilja af hverju við setjum ákveðnar virkjanir í orkunýtingarflokk eða í verndarflokk. Við skiljum það einmitt síður ef við höfum ekki stefnu um það hvert orkan á að fara, hvort við erum í stóriðjustefnunni, hvort við erum í grænni framtíð og þess háttar. Það er því hjálplegt að fá rammann inn eins og hann er núna, það er bara ákveðin lagaskylda að leggja hann fram og því um líkt. En væri ekki eðlilegt að jafnframt því spyrðum við okkur hér á þingi hverju þurfi að bæta við þetta ferli varðandi þau atriði sem hafa þróast frá því að það var fyrst búið til, t.d. hvað varðar þá skyldu stjórnvalda að leggja fram orkuáætlun, orkustefnu og þess háttar? Hvar passar það inn í ferli rammaáætlunargerðar?