áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Mig langar í seinni ræðu minni að koma örsnöggt inn á það sem ég held að sé verkefnið sem bíður hv. umhverfis- og samgöngunefndar. Á síðasta þingi, vorið 2021, þegar þetta sama mál var til meðhöndlunar, barst mikill fjöldi umsagna og það er nauðsynlegt að kafa vel ofan í það sem þar er. En það var líka búið að vinna töluvert mikið með þær umsagnir. Ef það er möguleiki að klára málið og koma því áfram og fyrirvarar Framsóknarflokks og þingflokks Vinstri grænna eru ekki þannig vaxnir að málið deyi á grundvelli þeirra þá held ég að það séu allar forsendur til að vinna þetta mál tiltölulega hratt. Ef það er vilji til þess þá held ég að það muni gjörbreyta allri stöðu, bæði ráðherrans, ráðuneytisins og þingsins alls gagnvart næsta skrefi sem er þá rammaáætlun 4. Ég held að það væri mikið til þess vinnandi. Nú er það væntanlega hv. þm. Vilhjálmur Árnason, formaður umhverfis- og samgöngunefndar, sem fær það verkefni að stýra málinu í gegnum umhverfis- og samgöngunefnd. Ég held að það væri mikið til þess vinnandi að nálgast málið þannig að menn ætluðu að klára það hratt. Við erum komin í ágætisæfingu að klára flókin mál tiltölulega hratt. Þau eru mýmörg málin í gegnum Covid-tímabilið sem hafa verið flókin og umfangsmikil en afgreidd tiltölulega hratt í gegnum þá nefnd sem þau voru unnin í.
Og af hverju segi ég þetta? Ég er hræddur um það af fenginni reynslu að ef málið verður enn til meðhöndlunar þegar kemur að þinglokum — þá gef ég mér að vindmyllumálið verði komið fram og raflínumálið verði komið fram og önnur þau mál sem fylla inn í þessa mynd sem við fjöllum hér um — en ef við verðum með þetta mál til umfjöllunar undir lok þingsins þá eru lífslíkur þess mun takmarkaðri en ef við nálgumst það þannig að ætla að klára það hratt og vel. Ég held að ágreiningur innan ríkisstjórnarflokkanna hljóti að vera þess eðlis að menn geti fundið út úr því tiltölulega hratt hver lendingin geti verið. Í umhverfis- og samgöngunefnd er skiptingin þannig nú að það eru sex fulltrúar stjórnarflokkanna og þrír stjórnarandstöðu. Auðvitað er það þannig að stjórnarflokkarnir gera bara það sem þeim sýnist með þetta mál. Og ef það er engin meining á bak við þetta þá er fyrsti tíminn bestur að það komi fram og það sé þá ekki verið að sóa tíma nefndarinnar í þær æfingar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)
Þess vegna brýni ég hæstv. ráðherra til að ýta fast á eftir gagnvart nefndarformanni flokksins, Vilhjálmi Árnasyni, þeim hörkuduglega þingmanni, að keyra hratt á þetta. Það liggur allt fyrir um málið. Það er búið að leggja þetta mál fram óteljandi oft. Umsagnaraðilar eru búnir að senda margar umsagnir margir hverjir, mjög ígrundaðar allar umsagnir sem komu fram á síðasta þingi. Málið er raunverulega tilbúið til lokavinnslu nefndar, jafn ótrúlegt og það kann að hljóma.
Ég vil því við þetta tækifæri brýna fulltrúa í umhverfis- og samgöngunefnd til að vinna málið hratt út frá því að við verðum tilbúin til að taka afstöðu til þess og klára það, nú eða henda því út af borðinu ef það verður niðurstaðan. Ég held að það sé raunhæft að það verði einhvern tímann um miðjan mars sem málið yrði tækt til síðari umr. Það þarf ekki meiri tíma en það innan umhverfis- og samgöngunefndar. Ég vildi bara leggja þetta inn í lok þessarar umræðu.