152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[17:47]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég ætla að klára í þessari umræðu mál sem ég impraði á í andsvörum við hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur um vinnulag rammans, það sé kannski orðið barn síns tíma hvernig við vinnum verndar- og orkunýtingaráætlun, það sé í rauninni eitt af mörgum púsluspilum sem þarf nú orðið að vinna og við þurfum að sjá hin púsluspilin til að skilja hvernig þau passa saman. Ég tel alla vega að það sé tiltölulega erfitt að afgreiða þessa tillögu á þessu þingi, ég held að það sé ekki alger nauðsyn að gera það heldur, það liggi ekki lífið á, en ég skynja það alla vega ekki af greinargerðinni að það sé endilega ætlunin með framlagningunni heldur að hefja einmitt samtalið í stærra samhengi, ekki bara um verndar- og orkunýtingaráætlun heldur líka orkustefnu sem stjórnvöld þurfa að leggja fram. Hvaðan kemur orkan? Hvert á hún að fara? Hvort erum við að fara í græna orkustefnu eða stóriðjustefnu, hvernig á hlutfallið að vera? Er áætlun um tækniuppfærslur til að nýta betur orkuna í þeirri framleiðslu sem við erum með nú þegar? Hæstv. ráðherra segir að það sé frumvarp á leiðinni. Þetta er eitt af þeim púsluspilum sem við þurfum að safna saman til að skoða heildarmyndina. Það er tvímælalaust nauðsynlegt að leggja þetta mál fram, alveg bókað mál, og kannski púslast allt rosalega auðveldlega saman og myndin verður okkur mjög ljós á þessum tiltölulega stutta tíma sem er eftir af þessu þingi. Ég leyfi mér að efast um það að gefinni reynslu út af því hvað allt hreyfist rosalega hægt hérna. Ég er ekkert rosalega bjartsýnn. Ég segi eins og hv. þm. Bergþór Ólason kom inn á áðan, ef það tefst svona fram í apríl, maí að komast að einhverri niðurstöðu þá er ekki séns að það komist nokkuð áfram, ekki út af stjórnarandstöðunni, eins og var minnst á áðan, heldur út af því að stjórnarflokkarnir eru að toga mál úr vernd yfir í bið og úr nýtingu yfir í bið. Það virðist vera bitbeinið, hvað fær að vera eftir í hvorum flokki. Þá er það bara þessa klassíska samningatækni að reyna að toga til þá bita sem hinn aðilinn vill síst missa úr verndarflokki eða úr nýtingarflokki og svo endar það einhvers staðar á því að menn sættast á að þeir kostir sem eru svona sársaukaminnstir flytjist yfir í biðflokkinn. Við vitum ekki hvort niðurstaða næst, það væri áhugavert að heyra það í sambandi við þessa fyrirvara sem hafa komið, leggja það inn í lýðræðislega umræðu um hvað sé verið að tala, hvaða kostir séu í boði. Ég tel að stjórnarandstaðan geti alveg lagt orð í belg í þeirri umræðu. En við vitum alveg að niðurstaðan verður sú sem ríkisstjórnin ákveður og þá allir þingflokkar ríkisstjórnarinnar. Við verðum áhugasamir áhorfendur í því að sjá hvernig þetta mál spilast. En ég minni einmitt á heildarpúsluspilið, það er ekki nóg að samþykkja bara og segja: Við ætlum að setja þessa kosti í nýtingarflokk, þessa í verndarflokk og halda þessum í biðflokki. Við þurfum að sjá til hvers er verið að setja ákveðna kosti í nýtingarflokk. Í hvað á orkan að fara sem kemur úr þeim kostum? Bara um það bil, ég er ekki að biðja um nákvæma greiningu á því að þetta fyrirtæki eða hitt komi og muni nýta nákvæmlega þessa orku heldur stefnulega séð. Fer þetta í græna orku? Fer þetta í stóriðju? Fer þetta í orkuöryggi ýmissa landshluta? Þess háttar greining, bara almenn flokkun á því hvernig orkan á nýtast.