áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Ég er að reyna að koma þessu frá mér á málefnalegan hátt hvað tímann varðar. Það er mikið af upplýsingum sem þurfa að koma þarna fram. Ef þær koma skýrt og skilmerkilega þá gæti þetta alveg gerst. En af fenginni reynslu hafa upplýsingar oft ekki borist á eins aðgengilegan hátt og maður hefði viljað til að geta tekið upplýsta ákvörðun um svona stór mál. Það væri mjög gott ef það væri ekki alltaf klippt á þingmálahalann þannig að það þyrfti ekki að byrja alveg á byrjun. Það væri mjög gott fyrir t.d. svona mál. Það getur vel verið að grænbókin komi og sýni þetta bara svart á hvítu í tæka tíð. Það væri fínt og þá bara klárast þetta, ekkert mál. En af fenginni reynslu þá hreyfist oft allt miklu hægar hérna en við myndum vilja. Það er eina ástæðan fyrir því að ég nefni þetta. Það er ekkert annað þar á bak við.
Hvað varðar það að flytja framleiðslu frá Íslandi eitthvað annað og að það verði einhvern veginn verra fyrir umhverfið þá er það ekki rétt. Það þýðir að við erum með þá orku sem er afgangs hérna í staðinn sem við getum þá nýtt í eitthvað annað sem væri t.d. umhverfisvænna. Við erum samkeppnishæfari varðandi umhverfisvæna orku en velflestir aðrir staðir í heiminum sem myndi gera það sem við værum þá að framleiða í staðinn umhverfisvænna og samkeppnishæfara á þeim vettvangi og myndi þá frekar fasa út óumhverfisvænni framleiðslu. Þá væri tilfærslan á slíkum verkefnum a.m.k. kolefnishlutlaus. Við erum ekki í algeru tómarúmi hérna þar sem þetta eru bara skipti á einu verkefni fyrir annað. Það er stærra mengi sem við erum að glíma við.