152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[18:09]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þessi röksemdafærsla gengur ekki upp. Það er alveg ljóst hver vandinn er. Það er það sem er tekist um á alþjóðavettvangi og ég þekki það mjög vel úr mínu fyrra starfi þar sem við töluðum mikið um loftslagsmálin. Vandinn er þessi: Það er verið að framleiða allra handa hluti og það er oft á tíðum með ódýrum hætti og með orkugjöfum sem eru jarðefnaeldsneyti. Það er vandinn. En stærstu framleiðslueiningarnar okkar eru framleiddar með endurnýjanlegum orkugjöfum. (BLG: Upprunaábyrgðir.) — Það hefur ekkert með upprunaábyrgðir að gera, það er allt annað. — Þannig er það. Við erum t.d. með álver sem hafa öll á stefnuskránni að verða kolefnishlutlaus. Það liggur alveg fyrir að ef sú starfsemi eða einhver önnur starfsemi færi eitthvað annað þá eru allar líkur á að það hefði mjög slæm áhrif á loftslagið. Mjög slæm áhrif.

Ástæðan fyrir því að við erum núna í þeirri kjörstöðu að menn eru að banka upp á sem aldrei fyrr, því að það hefur verið frekar erfitt að fá erlenda fjárfestingu til landsins, er að allt í einu sjá menn að ef hér er til orka þá er hún umhverfisvæn og endurnýjanleg og þeir vilja fara í slíka framleiðslu. Pendúllinn er að fara þangað og er löngu farinn þangað. En auðvitað getum við ekki gert allt. Eins og staðan er núna er alveg gríðarleg eftirspurn eftir þessu. Hún verður vonandi ekki endalaus, vonandi næst jafnvægi þegar menn eru búnir að ná þessu alls staðar um heiminn. En það er kannski ekki aðalatriðið því að við erum með alveg næg verkefni þegar kemur að okkar loftslagsmarkmiðum og eigum líka að nýta þau tækifæri sem hér eru og ég held að sé nú almennt sátt um. Aðalatriðið er að hefja verkefnið og ég met orð hv. þingmanns þannig að hann sé tilbúinn í það verkefni og ég fagna því og ég treysti þinginu fullkomlega til að vinna þetta vel.