hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Tilgangur frumvarpsins er að auka skýrleika laganna og bæta skilvirkni eftirlits stjórnvalda, þar sem markmiðið er að tryggja öryggi fólks á sviði hollustuhátta og stuðla að heilnæmu umhverfi. Frumvarpið er endurflutt með nokkrum breytingum í tilefni af umsögnum til þingsins og nýjum lögum um umhverfismat framkvæmda, nr. 111/2021, auk þess sem breytingar voru gerðar vegna nýlegs úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Meginefni frumvarpsins er eftirfarandi: Í fyrsta lagi að styrkja frekar heimildir ráðherra til að kveða í reglugerð á um lágmarkskröfur sem gerðar hafa verið um menntun, þjálfun og námskeið fyrir þá aðila sem þurfa að hafa þekkingu og hæfni á sviði sóttvarna, skyndihjálpar og öryggis, og próf sem viðkomandi skal standast til að sýna fram á þekkingu. Þessar lágmarkskröfur eru mikilvægar til að tryggja öryggi á sviði hollustuhátta gagnvart almenningi og eiga m.a. við um sundkennara, laugaverði og sundþjálfara. Þær miða að því að tryggja að hlutaðeigandi geti bjargað fólki úr laug, beitt skyndihjálp og endurlífgun, enda er um mikilvægt öryggishlutverk á sund- og baðstöðum að ræða. Ákvæði þessi eiga einnig við um aðila sem starfa við að gata eða flúra húð eða veita meðferð með nálastungum og þurfa að kunna og geta beitt sýkingavörnum.
Í öðru lagi eru í frumvarpinu skýrðar frekar eftirlitsskyldur stjórnvalda og umfang eftirlits með starfsemi og athöfnum sem getur valdið mengun eða ógnað hollustuháttum og er ekki háð leyfis- eða skráningarskyldu. Hér er ekki um nýtt eftirlit að ræða heldur er verið að kveða skýrar á um eftirlitsskyldur Umhverfisstofnunar og heilbrigðisnefnda sveitarfélaga og skyldur þeirra aðila sem háðir eru eftirliti. Mikilvægt er m.a. að skýrt sé að skylda eftirlitsskyldra aðila til að veita upplýsingar eigi við um alla starfsemi sem heyrir undir lögin. Dæmi um starfsemi og athafnir sem myndu falla hér undir eru: opin leiksvæði sem þurfa að uppfylla ákvæði reglugerðar um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim, skemmtistaðir sem þurfa að uppfylla ákvæði í reglugerð um hávaðamörk, hreinlæti á lóðum og opnum svæðum, dreifing og notkun seyru, og frístundahúsasvæði þar sem heilbrigðisnefndum er heimilt samkvæmt reglugerð að fara fram á ráðstafanir til að minnka slysahættu í umhverfinu og tryggja almenn loftgæði. Mikilvægt er að eftirlitsaðilar geti beitt þeim úrræðum sem lögin og reglugerðir gera ráð fyrir og þörf er á gagnvart þeirri starfsemi sem fellur undir lögin.
Í þriðja lagi eru í frumvarpinu lagðar til breytingar á lögunum til að skýra nánar hvenær starfsemi sem felur í sér endurnýtingu úrgangs er háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar eða heilbrigðisnefndar. Í því skyni er lögð til stærðarafmörkun á slíkri starfsemi í viðauka IV með lögunum, sem stuðlar að því að verkaskiptingin milli þessara tveggja stjórnvalda sé skýr.
Í fjórða lagi er kveðið skýrar á um heimild til handa Umhverfisstofnun og heilbrigðisnefndum til að veita áminningu til að knýja á um framkvæmd ráðstöfunar samkvæmt eigin fyrirmælum, svo sem starfsleyfum.
Auk framangreindra atriða eru lagðar til breytingar til samræmis við ný lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021, og að styrkt verði gjaldtökuheimild Umhverfisstofnunar varðandi skráningu á mengandi atvinnustarfsemi, sem er m.a. hluti af þeirri stefnu stjórnvalda að auka rafræna stjórnsýslu. Einnig er bætt við heimild til að beita stjórnvaldssektum á einstaklinga eða lögaðila sem virða ekki ákvæði starfsleyfa um mengunarvarnir, hvíld svæðis, skýrsluskil eða mælingar auk ákvæðis um skil umhverfisupplýsinga til að auka skilvirkni þeirra.
Ekki er gert ráð fyrir fjárhagsáhrifum hjá ríkissjóði vegna frumvarpsins.
Virðulegi forseti. Ég hef hér rakið meginefni þessa frumvarps. Ég legg til að því verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.