152. löggjafarþing — 38. fundur,  21. feb. 2022.

hugmyndir viðskiptaráðherra um bankaskatt.

[15:12]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Forseti Já, ég hlýt að kalla eftir skýrara svari. Það er gríðarlega mikilvægt þegar hitna fer og stórir hópar munu lenda í vandræðum að ríkisstjórnin sé algerlega samstiga í málinu. Það er algerlega skýrt á umræðu síðustu daga að Framsóknarflokkurinn vill fara allt aðra leið en Sjálfstæðisflokkurinn. Þá kemur svolítið að spurningunni: Hvar stendur VG í þessu? Hæstv. forsætisráðherra sagði vissulega áðan stöðuna sýna að aðgerðir ríkisstjórnarinnar hefðu heppnast. Má skilja hæstv. forsætisráðherra þannig að henni finnist hlutirnir vera í góðu lagi og það þurfi ekkert að grípa til þessara sérstöku aðgerða.

Varðandi húsnæðismálin þá verður hæstv. forsætisráðherra auðvitað að gangast við því að það að ríkisstjórnin hafi ekki ráðist með nógu kröftugum aðgerðum, sértækum aðgerðum, í að styðja við heimili landsins heldur látið bankakerfinu dálítið eftir að dreifa peningunum er ein af ástæðum þess að húsnæðisverð fór upp úr þakinu á stærstu krepputímum sem við munum eftir. (Gripið fram í: Milljón fyrir fermetrann.)