hugmyndir viðskiptaráðherra um bankaskatt.
Herra forseti. Ég hlýt að gera athugasemd við það þegar hv. þingmaður talar um að bankakerfinu hafi verið látið það eftir að dreifa peningum. Er hv. þingmaður að vísa í þá stöðu að vextir lækkuðu? Og er hv. þingmaður andsnúinn þeirri ákvörðun, sem auðvitað er ekki tekin af ríkisstjórn heldur af Seðlabanka, að lækka hér vexti í takti við umsvif í efnahagskerfinu? Það væri bara mjög áhugavert að fá skýrt fram hvað Samfylkingunni finnst um það því að þeirra málflutning má skilja þannig (Gripið fram í.) að þau hafi lagst gegn vaxtalækkunum.
Hv. þingmaður spyr mig: Er þá allt í lagi? Ég er að segja að viðfangsefnin eru önnur nú en þegar helsta viðfangsefni stjórnvalda var að halda hér uppi atvinnustigi og ég held að flestir í þessum sal hafi verið sammála um þau viðbrögð. Núna blasir hins vegar við verðbólga. Við því þarf að bregðast. Þess vegna horfi ég sérstaklega til húsnæðismálanna sem er það sem stjórnvöld geta einna helst gert til að bregðast við verðbólgunni. Þar verður ekkert horft fram hjá því að þar er skortur á framboði. Þriðjungur þeirra nýju íbúða sem voru byggðar í fyrra og hittiðfyrra kom til vegna aðgerða stjórnvalda. Kannski þarf einfaldlega að gera betur í því (Forseti hringir.) og byggja enn stærri hluta með aðgerðum stjórnvalda. (Forseti hringir.) Ég vísa þá í almenna íbúðakerfið og ég vísa þá í hlutdeildarlánakerfið. Síðan þurfum við að horfa á afkomu þeirra sem lakast standa og (Forseti hringir.) það eru m.a. þau sem eru á leigumarkaði og unga fólkið. (LE: Ég vísa þá í tillögu Samfylkingarinnar um …)