yfirheyrslur yfir blaðamönnum.
Forseti. Lýðræðið þrífst á opinni samfélagsumræðu og frjáls fjölmiðlun er hornsteinn þeirrar umræðu. Almenningur hefði aldrei komist á snoðir um Samherjamálið, Klaustursmálið, uppreisn æru málið, Panama-skjölin, Borgunarmálið og fleiri mikilvæg mál ef ekki hefði verið fyrir vinnu blaðamanna við að upplýsa almenning.
Nú virðist sem svo að lögreglustjóri umdæmisins þar sem Samherji á höfuðstöðvar hafi tekið það upp hjá sjálfri sér að beita fráleitri lagatúlkun á ákvæði hegningarlaga, sem breytt var til að vernda kynferðislega friðhelgi, til að skilgreina blaðamenn sem sakborninga í máli sem varðar meint brot á friðhelgi einkalífs. Höfum í huga að þetta eru blaðamenn sem upplýstu um óvægnar og ósvífnar aðferðir Samherja við að njósna, sitja um og þagga niður í blaðamönnum við vinnu sína við Samherjamálið. Þetta eru blaðamennirnir sem upplýstu okkur um að Samherji væri að leggja á ráðin um að koma í veg fyrir að lykilvitni gæti komið fyrir dóm í Namibíu.
Hæstv. forsætisráðherra sagði raunar, ef mig misminnir ekki, að svona geri menn einfaldlega ekki, í kjölfar þessarar umfjöllunar sem nú virðist eiga að kæfa. Ég spyr því forsætisráðherra hvaða augum hún líti á það að lögreglan ákveði að yfirheyra blaðamenn vegna umfjöllunar þeirra um einn stærsta aðila í íslenskum sjávarútvegi, þann sama og sætir rannsókn vegna alvarlegrar spillingar og mútubrota, bæði hér á landi og erlendis. Hvaða augum lítur hæstv. forsætisráðherra á það?