152. löggjafarþing — 38. fundur,  21. feb. 2022.

yfirheyrslur yfir blaðamönnum.

[15:19]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Ég þakka þessi svör. Í ljósi þess að ráðherra hefur farið yfir allt sem hún hefur gert fyrir fjölmiðla þá hefur samt, allt frá árinu 2018 til dagsins í dag, stöðugildum á fjölmiðlum fækkað um vel rúmlega helming. Þetta er sá tími sem hæstv. ráðherra hefur setið á stóli forsætisráðherra. Þetta er gríðarlegur atgervisflótti úr stétt sem hefur það hlutverk að upplýsa almenning og veita valdhöfum aðhald og er í raun mikið áhyggjuefni út af fyrir sig. Þetta segir okkur að það er ekki búið að gera nóg. Ekki nóg með það heldur hefur formaður Sjálfstæðisflokksins og hæstv. fjármálaráðherra farið mikinn í að ýta undir upplýsingaóreiðu um lagalega stöðu blaðamanna og þá sérstöku vernd sem störf þeirra njóta. Ég vil því spyrja hæstv. forsætisráðherra: Hefur hún engar áhyggjur af því að yfirlýsingar hæstv. fjármálaráðherra verði til þess að grafa enn frekar undan fjölmiðlafrelsi á Íslandi? (Forseti hringir.) Er hæstv. forsætisráðherra sátt við orðræðu hæstv. fjármálaráðherra um þessi mál? Hvaða afleiðingar hefur þetta fyrir frjálsa fjölmiðla? (Forseti hringir.) Hvaða kælingaráhrif hefur þetta á getu fjölmiðla til að tjá sig?