152. löggjafarþing — 38. fundur,  21. feb. 2022.

yfirheyrslur yfir blaðamönnum.

[15:20]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Út af því sem hv. þingmaður nefndi um rekstrarstöðu fjölmiðla þá var ég auðvitað fyrst og fremst að ræða réttarstöðu fjölmiðla í mínu fyrra svari. Ég held að það sé óumdeilt að þau mál sem ég nefndi, og ég hef haft frumkvæði að hér í þinginu, eru öll til þess fallin að bæta réttarstöðu blaðamanna og réttarstöðu fjölmiðla. Það breytir því ekki að rekstrarstaða margra fjölmiðla er mjög þung og það frumvarp sem hér var samþykkt á síðasta kjörtímabili, sem miðaði að opinberum styrkjum til einkarekinna fjölmiðla, var auðvitað tilraun til að koma til móts við stöðu þeirra. En það má hins vegar deila um hverjar eru bestu leiðirnar í þeim efnum því að hér erum við ekki einungis með innlendan fjölmiðlamarkað, sem fjölmiðlarnir eru starfandi á, heldur sömuleiðis samkeppni við erlendan markað.

Og af því að hv. þingmaður er með svo margar spurningar þá vil ég kannski fyrst og fremst segja: Við verðum að treysta því að réttarkerfið og lögreglan starfi samkvæmt þeim lögum og reglum sem hafa verið sett. (Forseti hringir.) Þar eru ákveðin og skýr sjónarmið sem hafa verið fest í lög, eins og um vernd heimildarmanna. Það þekki ég mætavel og ég treysti því að þau mál fari eftir lögum og reglum.