veiðigjöld.
Virðulegi forseti. Ég geri mér vel grein fyrir því að það er ekki vilji hjá þessari ríkisstjórn að fara þá leið í sjávarútveginum sem við í Viðreisn teljum að skili mestu fyrir þjóðina. Hún er skýrust, hún er gegnsæ, hún er réttlát og það er markaðsleiðin, að okkar mati leið sem um 80% þjóðarinnar vilja líka fara. Ráðherra hefur hins vegar verið alveg skýr í þessum efnum í þessum sal fyrr á þessum þingvetri og það er ljóst að það er ekki sú vegferð sem hún vill fara. En það hefur vissulega, virðulegi forseti, dregið til nokkurra tíðinda því að hér eru að melda sig inn flokkar innan ríkisstjórnar sem lýsa því yfir að þeir séu tilbúnir til þess að hækka veiðigjöld í núverandi umhverfi, hækka veiðigjöld á sjávarútveginn. Varaformaður Framsóknarflokksins fullyrti að þingflokkur Framsóknar væri sammála henni um að hægt væri að hækka veiðigjöldin og það ætti að gera. Þess vegna liggur beinast við að spyrja hæstv. matvælaráðherra hvort hún hyggist ekki nýta þetta mikilvæga tækifæri sem er nú að koma upp í hendurnar á okkur og um leið þá þennan skýra meiri hluta hér á þingi því að það er meiri hluti á þingi til þess að hreyfa við þessu og hækka m.a. veiðigjöldin meðan við búum við það umhverfi sem nú er. Mun ráðherra leggja fram tillögur um hækkun á veiðigjöldum? Ætlar hún að láta reyna á þennan meiri hluta sem er í þinginu? Og ef svo er, hvenær má þá búast við þessum tillögum til hækkunar á veiðigjöldum frá hæstv. ráðherra?