152. löggjafarþing — 38. fundur,  21. feb. 2022.

veiðigjöld.

[15:24]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það er sannarlega þannig að það hversu mikið fjármagn rennur í sameiginlega sjóði frá sjávarútveginum er eitt af því sem hefur verið til umfjöllunar um langt árabil og m.a. að því er varðar uppbyggingu veiðigjaldanna á hverjum tíma. Það er jafnframt ljóst að sá þáttur umbúnaðar sjávarútvegskerfisins er einn af þeim sem er til skoðunar þegar við förum í þá vinnu sem fram undan er. En ég lýsti því yfir hér í óundirbúnum fyrirspurnatíma fyrir nokkru síðan að ég hefði sett mér það að birta hér verkáætlun um nefnd um sjávarútvegsmál sem talað er um í stjórnarsáttmála. Þessi vinna gengur vel og mitt plan er að fara með minnisblað í ríkisstjórn nú í vikulokin til að fara yfir stöðuna og setja þá verkáætlun í samráðsgátt stjórnvalda svo að almenningur geti átt aðkomu strax á fyrstu stigum. Ég held að það sé afar mikilvægt. Þarna erum við í raun og veru með allt undir og þá erum við bæði að tala um þau sjónarmið sem lúta að atvinnu og sértækum byggðaaðgerðum og hér hafa verið rædd strandveiðimál o.s.frv. Líka þau mál sem lúta að samþjöppun aflaheimilda, milliverðlagningu og fleiri þáttum af því tagi, en ekki síður þeim málum sem hv. þingmaður nefnir hér sem eru þau sjónarmið sem lúta að því með hvaða hætti og hversu mikið sjávarútvegurinn leggur til í sameiginlega sjóði. Þessir þættir eiga alltaf að vera til umræðu og ekki síður á þessum tímum þegar við erum að horfa til þess að við erum að vinna okkur út úr efnahagsáfalli sem var til umræðu fyrr í fyrirspurnatímanum. Þá erum við auðvitað bæði að tala um útgjaldahliðina sem hefur verið til umfjöllunar og jafnframt möguleika á tekjuöflun.