veiðigjöld.
Virðulegur forseti. Með fullri virðingu þá finnst mér þetta svar ráðherra vera algjör flótti. Það er verið að skýla sér á bak við, enn og aftur, kortlagningu, tillögugerðir o.s.frv. Ég bara velti því fyrir mér hversu margar skýrslur hafa verið skrifaðar um þetta í gegnum tíðina fyrir utan allar þær skýrslur sem hafa ekki fengist birtar. En það er nú önnur saga. Ég vil líka minna á það að eitt fyrsta embættisverk ráðherra var einmitt að taka ákvörðun um það í rauninni að sparka í smærri sjávarútvegsfyrirtæki, strandveiðimenn og smábátasjómenn. Það var mjög einföld ákvörðun og fyrsta embættisverkið. Mín spurning er mjög einföld, í ljósi þess að VG hefur m.a. hafnað öllum tillögum okkar um tímabindingu samninga, um gegnsæi, um dreifða eignaraðild o.s.frv. Staðan er gjörbreytt núna. Þetta er mjög skýr spurning: Ætlar ráðherra að taka varaformann Framsóknar og viðskiptaráðherra á orðinu og koma með tillögu um hækkun veiðigjalda? Þetta er einfalt svar: Já eða nei. Ætlar ráðherra að koma með tillögu, nýta sér þessi orð og þennan vilja sem (Forseti hringir.) loksins er hægt að greina innan Framsóknar og koma með tillögu hingað í þingið fyrir okkur þingmenn til að taka afstöðu til?