152. löggjafarþing — 38. fundur,  21. feb. 2022.

veiðigjöld.

[15:28]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Eins og fram kom í fyrra svari mínu stendur til að tryggja að almenningur fái hér aðkomu, sem er mjög mikilvægt í svo viðamiklu máli sem hér er undir, strax í upphafi verkefnisins. Ég vil nefna þá ágætu staðreynd að ég hef verið ráðherra sjávarútvegsmála í tíu vikur og hv. fyrirspyrjandi var ráðherra sjávarútvegsmála í tíu mánuði án þess að nokkuð drægi til tíðinda. Við skulum sjá hvað setur og ég hef a.m.k. dregið þá ályktun, af því sem fyrr hefur verið gert í þessum málaflokki, að það sé mikilvægt að almenningur fái aðkomu. Það hafa fyrri ráðherrar ekki gert þegar um er að ræða stór verkefni af þessum toga en það verður gert að þessu sinni.