arðgreiðslur frá bönkum.
Herra forseti. Hv. þingmaður kom inn á svo mörg atriði að ég hef strax áhyggjur af tímanum. En ef við byrjum á þeirri stöðu að ríkið á Landsbankann, og það er mín skoðun að ríkið eigi að eiga Landsbankann, og að ríkið á sömuleiðis drjúgan meiri hluta í Íslandsbanka þá er það að sjálfsögðu svo, eins og ég benti á í þessu viðtali, að það kemur almenningi í landinu auðvitað til góða þegar þessi fyrirtæki skila jafn ríflegum arði og raun ber vitni. Og fara þær arðgreiðslur í félagslegar aðgerðir? Ég sagði í þessu viðtali að að hluta til ættum við að nýta þær í félagslegar aðgerðir. Það mun verða þörf á því, í kjölfar heimsfaraldurs, að taka utan um viðkvæma hópa eða þau sem hafa upplifað mikla vanlíðan í gegnum þennan faraldur. Það mun verða þörf á því að taka utan um þau því að þó að atvinnustig sé gott og atvinnuleysi orðið lítið þá erum við enn með umtalsverðan hóp sem hefur verið atvinnulaus lengur en í 12 mánuði. Það skiptir máli að taka utan um þann hóp. Það skiptir máli að taka utan um þá sem til að mynda eru langveikir, fatlaðir og aðrir.
Mér fannst ég greina einhvern tón þegar hv. þingmaður ræddi félagslegar aðgerðir. Ég ætla ekki að gera lítið úr þörfinni á þeim í kjölfar ástandsins sem hér hefur verið. Og við vitum það öll í þessum sal hve mikil áhrif þessi faraldur hefur haft á líðan fólks og ekki bara á viðkvæma hópa heldur líka ungt fólk, svo dæmi sé tekið, sem hefur mátt lifa allt öðruvísi tíma en það ætlaði sér. Þannig að: Já, það verður tekið utan um þessa hópa og til þess geta arðgreiðslur nýst.
Það liggur síðan algjörlega fyrir að það hefur verið á dagskrá þessarar ríkisstjórnar að selja Íslandsbanka. Það mun að sjálfsögðu hafa verulega jákvæð áhrif á skuldastöðu ríkisins þar sem um stóra eign er að ræða. Og af því að hv. þingmaður nefndi Borgarlínu þá get ég ekki annað en freistast til þess að nefna hana líka. Ég held að það verði líka risastórt lífskjaramál (Forseti hringir.) þegar við ljúkum því verkefni að byggja upp öflugt almenningssamgöngukerfi á höfuðborgarsvæðinu.