arðgreiðslur frá bönkum.
Herra forseti. Hæstv. forsætisráðherra þyrfti ekki að hafa svona miklar áhyggjur af tímanum ef hæstv. ráðherra einbeitti sér að því að svara spurningum í stað þess að halda þessi hefðbundnu erindi um þau mál sem hæstv. ráðherra langar að ræða, reyna að greina einhvern tón og slíkt. Ég er einfaldlega að spyrja hæstv. ráðherra í ljósi þess að yfirlýsingarnar voru afdráttarlausar: Er hæstv. forsætisráðherra búin að semja við hæstv. fjármálaráðherra um hvernig arðgreiðslur úr Íslandsbanka verði nýttar og þá væntanlega, fyrst til stendur að selja bankann og koma þá væntanlega ekki frekari arðgreiðslur, hvernig afraksturinn verður nýttur? Við þekkjum það öll að það þarf mikið fjármagn í félagsleg verkefni. Hæstv. ráðherra nefndi það sérstaklega að þessir peningar yrðu eyrnamerktir tilteknum félagslegum verkefnum. Hvaða verkefni eru það og er hæstv. ráðherra búin að semja við hæstv. fjármálaráðherra um þá sérstöku ráðstöfun?