arðgreiðslur frá bönkum.
Herra forseti. Úr því að hv. þingmaður telur sig þess umkominn að kenna mér að svara spurningum þá get ég bent hv. þingmanni á að þá er ágætt að hafa spurningarnar ekki alveg svona margar þegar spurt er og blanda ekki borgarlínu alltaf inn í spurningarnar. Ríkisstjórnin markar sér auðvitað ákveðna stefnu í viðbrögðum við faraldrinum. Það höfum við gert allan tímann og núna, þegar við horfum vonandi fram á endalok þessa faraldurs, þá er ríkisstjórnin algjörlega sammála um það — af því að hv. þingmaður stillir þessu upp eins og við sitjum hér, ég og fjármálaráðherra, og semjum um einhvers konar fjármuni — og það er áherslumál allra þessara flokka sem skipa ríkisstjórnina að það skipti máli að við tökum utan um hina félagslegu uppbyggingu í kjölfar faraldurs. Af því hv. þingmaður vitnar í orð mín þá nefndi ég, vegna þess að ég var sérstaklega spurð um það hvort arðgreiðslur myndu renna í slík verkefni, að já, að hluta til gætu þær runnið í það. En hv. þingmaður veit það jafn vel og ég að arðgreiðslurnar fara inn í ríkissjóð, styrkir til félagslegra verkefna fara úr ríkissjóði og það er enginn sem telur hvort það eru sömu krónurnar. Þegar um er að ræða sömu spurningu um andvirði Íslandsbanka þá liggur í raun og veru hið sama fyrir en að sjálfsögðu horfir það þannig við að (Forseti hringir.) það mun skipta verulegu máli fyrir skuldastöðu ríkissjóðs (Gripið fram í.) ef sú sala gengur eftir. Verður ráðist í félagslega uppbyggingu? Já. (Gripið fram í.) Það er svarið. Svarið er já við því.