börn á biðlistum.
Virðulegi forseti. Ég hef persónulega átt mörg samtöl við fjölskyldur sem eru að bíða eftir þjónustu og það hefur verið drifkrafturinn í því að halda áfram að bæta stöðu þessara hópa. Það hefur m.a. fleytt okkur á þann stað að við ákváðum að byrja á grunninum með því að fara í farsældarlöggjöfina, fyrsta og annars stigs úrræðin þar, samtalið þar á milli kerfa. Í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar er sérstakt leiðarljós gagnvart þriðja stigs úrræðum og úrræðum almennt, og við erum að fara í þá vinnu. Við munum byrja á þyngstu úrræðunum en síðan er það leiðarljósið þar að settar verði skýrar reglur og löggjöf um ákveðinn biðtíma eftir þjónustu, eins konar þjónustutryggingu. Það krefst samtals á milli allra þeirra aðila sem hafa komið að því að smíða farsældarlöggjöfina og innleiða hana. Ég hef trú á því að okkur takist að eyða biðlistum eftir nauðsynlegri þjónustu fyrir börn og barnafjölskyldur en í þeirri vinnu þarf nýja hugsun, nýja nálgun og samtal á milli kerfa.