152. löggjafarþing — 38. fundur,  21. feb. 2022.

sérhæfð búsetuúrræði fyrir börn.

[15:45]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa mjög svo góðu fyrirspurn og segja að hún tengist að einhverju leyti fyrirspurninni sem var hér áðan líka. Það er mikilvægt þegar greining hefur farið fram að þá sé þjónustuúrræði til staðar. Það er með þetta eins og það sem við ræddum áðan að um þriðja stigs úrræði er að ræða. Eins og kom fram í máli hv. þingmanns þá er það gríðarlega mikilvægt vegna þess að þetta er ekki þannig að ríkið eitt geti leyst þetta, ráðuneyti geti eitt leyst þetta eða sveitarfélag geti eitt leyst þetta. Það þarf samtal á milli þessara aðila til að endurskipuleggja þau þjónustuúrræði sem við erum að veita, m.a. á grundvelli barnaverndarlaga. Það er það sem nú er í gangi og var í gangi við endurskoðun fyrri hluta barnaverndarlaga á síðasta kjörtímabili með því að leggja niður pólitískar barnaverndarnefndir og stækka barnaverndarumdæmi. Í seinni hlutanum, sem ekki náðist að gera, m.a. vegna Covid-faraldursins en þá skiptum við þeirri vinnu upp í tvo fasa sem við hefðum kannski náð annars, stendur til að fara í endurskoðun á þeim úrræðum sem veitt eru á þriðja stigi, bæði að samþætta þau við nýju farsældarlöggjöfina en líka kortleggja hvaða nýju úrræði við þurfum að grípa til og með hvaða hætti og fá sveitarfélögin að þeirri vinnu. Það þarf að klára kostnaðarsamtal þar á milli. Eitt af brýnustu verkefnunum núna í allri vinnu þegar kemur að málefnum barna og barnafjölskyldna er þetta tvennt, þ.e. annars vegar greiningin og hins vegar úrræðin sem á því hvíla. En það verður ekki leyst nema í samtali við sveitarfélögin og við erum komin vel af stað í þá vinnu. Ég var til að mynda á skólaþingi í morgun þar sem verið var að ræða nákvæmlega með hvaða hætti við gætum gripið fyrr inn hjá börnum með þyngstu þarfirnar í samstarfi við skólana til að ekki þyrfti að koma til þessara þriðja stigs úrræða. Það mun því þurfa fjármagn inn í þetta, frá ríki og sveitarfélögum, bæði í bráð en líka í lengd vegna þess að þetta mun spara til lengri tíma litið. Þannig að (Forseti hringir.) stefnuna erum við að vinna í samstarfi við m.a. við sveitarfélög og við önnur hlutaðeigandi ráðuneyti.