152. löggjafarþing — 38. fundur,  21. feb. 2022.

sérhæfð búsetuúrræði fyrir börn.

[15:48]
Horfa

Eva Dögg Davíðsdóttir (Vg):

Forseti. Ég þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra kærlega fyrir svörin og það er frábært að heyra að þessi vinna sé komin vel á veg. Það er verulega mikilvægt að ríkið mæti þessari áskorun með öflugum og sértækum úrræðum. Þessi úrræði þurfi að vera sveigjanleg og aðlöguð að þeim einstaklingum sem þjónustuna þurfa og svo er auðvitað mikilvægt, eins og ráðherrann nefnir, að samþætta þá fagþekkingu og þjónustu sem til staðar er á ólíkum stigum stjórnsýslunnar. Þá vil ég nefna að þessi skýrsla sem ég vísa til kallar ekki bara eftir þriðja stigs úrræðum heldur líka samþættingu ólíkra úrræða á ólíkum stigum. En af því að ráðherra nefnir lögin um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna þá langar mig til að spyrja hvernig hæstv. ráðherra sér fyrir sér að auka samþættingu þessara kerfa, sérstaklega í samhengi við þjónustu fyrir börn með fjölþættan vanda.