um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Íslenskur ríkisborgararéttur er veittur með tvennum hætti, annars vegar með lögum frá Alþingi og hins vegar í gegnum stjórnsýslumeðferð hjá Útlendingastofnun að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Önnur leiðin er á ábyrgð Útlendingastofnunar í umboði Alþingis, hin leiðin er á ábyrgð þingsins. Sú staða kom upp hér í desember og er enn uppi að stjórnvöld, þ.e. Útlendingastofnun í skjóli hæstv. dómsmálaráðherra, neita að fylgja því fyrirkomulagi sem Alþingi hefur ákveðið um afgreiðslu þingsins á umsóknum sem þingið ber ábyrgð á afgreiðslunni á. Þetta er auðvitað orðin algerlega óþolandi staða. Nú er ég búin að missa töluna á því hversu oft ég komið hingað upp til að leita atbeina forseta við að verja virðingu þingsins gagnvart stjórnvöldum þar sem ekkert er að haggast. Það mjakast ekkert, það gerist ekkert.
Mig langar í fyrsta lagi að spyrja hæstv. forseta hvort eitthvert frekara samtal hafi átt sér stað af hálfu forseta og hins vegar langar mig að spyrja: Hefur Alþingi Íslendinga einhver tæki til þess að bregðast við þegar stjórnvöld neita að sinna (Forseti hringir.) lögbundinni skyldu sinni gagnvart þinginu?