152. löggjafarþing — 38. fundur, 21. feb. 2022.
um fundarstjórn.
Til að gera langa sögu stutta hafa ýmis samtöl átt sér stað í þessu og forseti stóð í þeirri meiningu að einhver þróun væri í þessum efnum. Síðan er það annað mál að hér var í umræðum um fundarstjórn forseta fyrir nokkru óskaði eftir lögfræðilegri greinargerð eða minnisblaði varðandi túlkun á 51. gr. þingskapa og miðað við upplýsingar forseta er verið að ljúka þeirri vinnu af hálfu lögfræðinga þingsins.