um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að þetta er algjörlega óboðlegt. Herra forseti verður bara í rauninni að beita sér fyrir Alþingi og fyrir okkur mikinn meiri hluta í nefndinni sem telur að þetta sé komið út í eitthvert öngstræti. Það er nú þannig í lífinu að sjái maður rák á himninum gerir maður ekkert mikið úr því. Sjái maður aðra og þriðju og fjórðu þá fer að teiknast upp mynstur og menn geta farið að draga ályktanir. Við þurfum kannski að fara að velta því fyrir okkur núna með framgöngu ráðherra í þessu máli, með framlagningu útlendingalaganna í samráðsgátt, með uppsögn á samningum við starfsmenn Rauða krossins og annað, hvort við erum að horfa upp á frekar ógeðfellda þróun í málefnum útlendinga. En í þessu máli verður herra forseti að stíga sterkar inn. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)