um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég verð nú að segja að ég átti von á því að við værum komin með málið í einhvern farveg því ég veit ekki betur en að undirnefnd allsherjar- og menntamálanefndar hafi fundað í morgun og verið að fara yfir þær fyrstu umsagnir sem borist hafa frá Útlendingastofnun og á sama tíma var upplýst um að þessar umsagnir myndu berast undirnefndinni núna með mjög reglulegu millibili. Þannig að ég vænti þess að undirnefndin hefji störf strax í að fara yfir þær umsagnir sem borist hafa og það muni þá kannski taka okkur nokkrar vikur að ná niður þessum bunka með um 170 umsögnum. Ég veit ekki betur en það ætti bara að ganga vel hjá okkur og ég vænti þess að við munum eiga gott samstarf um að ná utan um þetta verkefni.