152. löggjafarþing — 38. fundur,  21. feb. 2022.

um fundarstjórn.

[15:55]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Ég er fyrsti varaformaður allsherjar- og menntamálanefndar. Ég hef komið áður í ræðustól út af þessu máli og vitnaði m.a. í grein hæstv. dómsmálaráðherra í Vísi. Það virðist vera að hann skilji það ekki að undirbúningur undir lög er ekki stjórnsýslumál. Umsagnir Útlendingastofnunar eru ekki stjórnsýslumeðferð. Það er upplýsingagjöf til löggjafans svo að við getum sett lög og svo að við getum veitt ríkisborgararétt með lögum. Umsóknirnar sem eru stílaðar á Alþingi Íslendinga, þeim er grautað saman og blandað saman við umsagnir sem eru hjá Útlendingastofnun. Öllu er hrært í einn pott og svo er það tekið í röð. Þetta eru tvö aðskilin kerfi. Annað kerfið er skv. 6. gr. sem veitir ríkisborgararétt með lögum og hitt skv. 7. gr. sem er veiting ríkisborgararéttar með stjórnvaldsákvörðun, ekki lögum, af hálfu Útlendingastofnunar. Þennan grundvallarmun virðist hæstv. innanríkisráðherra ekki skilja.