um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég vil taka undir með kollegum mínum og ætla að byrja á að þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur, formanni allsherjar- og menntamálanefndar, fyrir að koma og skýra það sem þó virðist vera orðið skýrt í málinu. Ég tek jafnframt undir með hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni sem fór býsna vel yfir málið. Mig langar eiginlega að hnykkja á einu og það er það sem undrar mig. Við þingmenn höfum átt í nokkrum samtölum við hæstv. forseta sem hefur skýrt málið á sinn hátt en við erum þeirrar skoðunar að það gangi of hægt. En ég velti fyrir mér aðkomu ríkisstjórnarinnar að þessu máli, þeirra þingmanna sem jafnframt eru tímabundið handhafar framkvæmdarvaldsins, og ég var nú að binda vonir við að hæstv. forsætisráðherra sæti hér í salnum á meðan við ræddum þetta, vegna þess að það hlýtur að svíða fyrir forystukonu ríkisstjórnar, þess flokks sem hefur talað mikið fyrir virðingu og valdeflingu Alþingis, að stýra hér för vegna þess að það gerir hæstv. forsætisráðherra. Þetta eru átök á milli einstakra ráðherra (Forseti hringir.) og Alþingis og ég velti fyrir mér hvort það sé raunverulega svona (Forseti hringir.) sem hæstv. forsætisráðherra sá fyrir sér að þróunin yrði í hennar tíð.