um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson. Við höfum einmitt rætt þetta mál við hæstv. forsætisráðherra. Hún sagði í óundirbúnum fyrirspurnum að hún ætlaði sér að ræða þetta mál við hæstv. ráðherra, að það gengi ekki að ekki væri farið að lögum. Síðan kemur að opnum fundi í allsherjar- og menntamálanefnd og þar kemur fram í máli hæstv. dómsmálaráðherra — heitir hann víst, ég veit að það er mikill ruglingur á þessu, meira að segja hjá stjórnarliðum í salnum — að þau hafa ekkert farið djúpt í þessi mál, hæstv. forsætisráðherra og hæstv. dómsmálaráðherra. Ég velti fyrir mér efndum hæstv. forsætisráðherra á því sem hún sagði í óundirbúnum fyrirspurnatíma að hún ætlaði að gera, að hún ætlaði að taka til varna fyrir þingið, að hún ætlaði að ræða þetta mál við dómsmálaráðherra. Hvað varð af því og þeim fyrirheitum? Ég bara spyr.