um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. formanni allsherjar- og menntamálanefndar fyrir að stíga hér inn. Hún nefnir það að hún telji að málið sé í farvegi. Þess væri óskandi. Málið er eingöngu í þeim farvegi sem Útlendingastofnun hefur ákveðið að það eigi að vera. Það hefur Útlendingastofnun gert í trássi við það fyrirkomulag sem Alþingi var búið að ákveða. Það fyrirkomulag var með þeim hætti að Alþingi afgreiddi þessar umsóknir tvisvar sinnum á ári og það var ákveðið að hafa tiltekinn umsóknarfrest. Útlendingastofnun ætlar ekki að gera þetta. Í 1. mgr. 6. gr. laga um íslenskan ríkisborgararétt segir, með leyfi forseta:
„Alþingi veitir ríkisborgararétt með lögum.
Áður en umsókn um ríkisborgararétt er lögð fyrir Alþingi skal Útlendingastofnun fá um hana umsögn lögreglustjóra á dvalarstað umsækjanda. Enn fremur skal Útlendingastofnun gefa umsögn um umsóknina.“
Þetta ferli er á forræði þingsins. Þetta er, eins og hv. þm. Eyjólfur Ármannsson benti á rétt áðan, ekki stjórnsýslumeðferð. Þetta eru ekki á forræði Útlendingastofnunar. Þetta er löggjafarvinna hjá Alþingi (Forseti hringir.) og það er Alþingi sem á að stýra henni, ekki Útlendingastofnun og ekki hæstv. dómsmálaráðherra.