breytingar á þingsal.
Forseti vill geta þess, eins og þingmenn hafa tekið eftir og vikið var að í umræðum um óundirbúnar fyrirspurnir hér áðan, að breytingar hafa orðið á þingfundasvæðinu þannig að allir þingmenn sitja nú í þeim sætum sem þeir drógu við upphaf þinghalds fyrir jólin. Við höfum fjarlægt borð úr efri deildar sal og lestrarsal sem er vinnusvæði þingfundaskrifstofu og stólar færðir hingað inn og atkvæðagreiðslukerfið tengt í samræmi við það. Í ráðherraherbergi og útbýtingarherbergi, sem einu sinni var kallað blaðamannaherbergi, verða áfram þrjú borð sem eru ótengd atkvæðagreiðslukerfinu og stólar í hvoru herbergi fyrir sig sem þingmenn geta notað ef þeir vilja halda fjarlægð miðað við það sem gerist hér í þingsalnum. En vonir okkar standa til þess að þinghald geti nú farið fram með eðlilegri hætti en verið hefur undanfarin misseri.