áhrif heimilisofbeldis við úrskurð um umgengni.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Jóhanni Páli Jónssyni kærlega fyrir þetta mál sem ég samþykkti virkilega af öllu hjarta að vera meðflutningsmaður á. Staðan í íslensku kerfi er þannig í dag þegar um er að ræða heimilisofbeldi og börn, að ef um er að ræða a.m.k. eitt hæft foreldri þá heldur Barnavernd að sér höndum og vísar á sýslumann. Þá er þetta orðið að því sem kallast forræðis- eða umgengnisdeila á milli foreldranna. Vandinn er sá að borið hefur á ákveðinni tregðu í því kerfi til að taka nægt tillit til stöðu barnsins og horfa á málin frá stöðu barnsins en ekki sem ágreining milli foreldra. Ég tel þetta mál gríðarlega brýnt til þess að fá allar þær upplýsingar sem við þurfum til að finna út hvað þarf að gera til að laga þetta, laga þessa alvarlegu gjá í löggjöf okkar til þess að vernda börn gegn ofbeldi og vernda þau gegn því að verða vitni að ofbeldi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)