almenn hegningarlög.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir kynninguna á þessu litla en mjög svo mikilvægu máli og fagna áhuga hans á að taka með afgerandi hætti á mútubrotum á erlendri grundu. Mig langar að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra hvernig hann sjái fyrir sér að íslensk yfirvöld geti staðið við sínar skuldbindingar. Nærtækast er að horfa til Samherjamálsins sem opinberaðist 12. nóvember 2019 með umfjöllun Stundarinnar og Kveiks á því sem átti sér stað í Namibíu nokkru áður þegar mútur voru bornar á erlenda ráðamenn og erlenda starfsmenn af íslenskum starfsmönnum, að því er virðist, en lítið hefur spurst til þess máls hér. Við fjölluðum svolítið um það hér í þinginu að það þyrfti að styrkja héraðssaksóknara til þess að hann gæti brugðist við með afgerandi hætti í því máli, sem var gríðarlega umfangsmikið, til þess að þau hefðu nægan kraft til þess að fara í rannsókn málsins og ljúka því innan mikils frests. Ég vil heyra aðeins afstöðu hæstv. dómsmálaráðherra, hvort að embættið hafi verið styrkt og hvort hann sjái fyrir sér endalok málsins í nánustu framtíð.