almenn hegningarlög.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svarið. Mig langar að spyrja hann og biðja hann um að útlista nánar hvaða flöskuhálsa hann er að tala um sem tefji málin í kerfinu. Það er mikilvægt fyrir Alþingi að vita hvaða flöskuhálsar það eru, hvort við þurfum að breyta lögunum eða fara í einhverjar sérstakar aðgerðir hér innan húss til að réttarvörslukerfið virki sem skyldi. Nú lögðum við fram tillögu strax við fjárlagaumræðuna 2019 um aukið fjármagn til héraðssaksóknara svo hægt væri að fjölga starfsfólki til að rannsókn á þessu tiltekna máli gæti gengið hratt og vel fyrir sig, af því að þetta er auðvitað grafalvarlegt mál og hefur mikið að segja með trúverðugleika Íslands á erlendri grundu, trúverðugleika Íslands sem þjóðar sem tekur þátt í alþjóðlegum viðskiptum o.s.frv. Það er vert að benda á að fyrsta handtakan í Namibíu átt sér stað nokkrum dögum eftir að málið var opinberað og fyrsti fangelsisdómurinn þar í landi var kveðinn upp í febrúar 2020, eða um þremur mánuðum eftir að málið var upplýst. En hér á Íslandi er ekkert að frétta. Skýrslutökur höfðu ekki átt sér stað yfir meintum sakborningum nokkrum árum síðar. Ég velti fyrir mér hvort hæstv. dómsmálaráðherra hyggst beita sér til þess að efnahagsbrot taki ekki áratugi í meðferð í kerfinu heldur geti jafnvel klárast á nokkrum árum, öllum til heilla, líka sakborningum.